| Brunaþing 2026 verður haldið föstudaginn 29. maí á Hótel Reykjavík Natura – Berjaya Iceland Hotels, Nauthólsvegi 52. Fundinum verður jafnframt streymt á teams, hlekkur fylgir hér með. Málefni þingsins að þessu sinni er aðkoma slökkviliðs, landslagshönnun og samspil öryggisþátta og gæða útisvæða. Á þinginu verða erindi frá fjölbreyttum hópi sérfræðinga bæði hérlendra og erlendra landslagsarkitekta, fulltrúum frá Slökkviliði Höfuðborgarsvæðisins og brunahönnuðar. Dagskrá verður eftirfarandi: 9:00 Setning og skipun þingstjóra. Atli Rútur Þorsteinsson, formaður stjórnar Brunatæknifélags Íslands. 9:10 – 9:50 Morten Evensen og Kjersti Cederkvist og, Landskapsarkitekt MNLA. Grindaker AS. Era of the fire truck. 9:50 – 10:20 Kristinn Örn Björnsson, verkfræðingur M.Sc. Örugg verkfræðistofa. Kröfur til aðkomu slökkviliðs í brunahönnun. 10:20 – 10:40 Kaffihlé 10:40 – 11:10 Ólafur Gylfi Gylfason landslagsarkitekt FÍLA, Landslag. LÍFSGÆÐI < ÖRYGGI. 11:10 – 11:40 Birgir H. Guðbrandsson og Sveinbjörn Berentson. Slökkvilið Höfuðborgarsvæðisins. Aðkoma slökkviliðs. 11:40 Pallborðsumræður og spurningar. 12:00 Brunaþingi slitið. ________________________________________________________________________________ Microsoft Teams meeting Join: https://teams.microsoft.com/meet/377484678798099?p=SbU5tyU25TS97s67uP Meeting ID: 377 484 678 798 099 Passcode: fd9c5Yz2 Aðalfundur Brunatæknifélagsins verður haldinn í framhaldi af þinginu. Á dagskrá eru hefðbundin aðalfundarstörf. Hádegisverður er fyrir félagsmenn í boði BTÍ. Þingið er opið öllum og er í boði eftirtalinna styrktaraðila: |
![]() |
