| Brunaþing 2026 verður haldið föstudaginn 29. maí á Hótel Reykjavík Natura – Berjaya Iceland Hotels, Nauthólsvegi 52. Fundinum verður jafnframt streymt á teams, hlekkur fylgir hér með. Málefni þingsins að þessu sinni er aðkoma slökkviliðs, landslagshönnun og samspil öryggisþátta og gæða útisvæða. Á þinginu verða erindi frá fjölbreyttum hópi sérfræðinga bæði hérlendra og erlendra landslagsarkitekta, fulltrúum frá Slökkviliði Höfuðborgarsvæðisins og brunahönnuðar. Dagskrá verður eftirfarandi: 9:00 Setning og skipun þingstjóra. Atli Rútur Þorsteinsson, formaður stjórnar Brunatæknifélags Íslands. 9:10 – 9:50 Morten Evensen og Kjersti Cederkvist og, Landskapsarkitekt MNLA. Grindaker AS. Era of the fire truck. 9:50 – 10:20 Kristinn Örn Björnsson, verkfræðingur M.Sc. Örugg verkfræðistofa. Kröfur til aðkomu slökkviliðs í brunahönnun. 10:20 – 10:40 Kaffihlé 10:40 – 11:10 Ólafur Gylfi Gylfason landslagsarkitekt FÍLA, Landslag. LÍFSGÆÐI < ÖRYGGI. 11:10 – 11:40 Birgir H. Guðbrandsson og Sveinbjörn Berentson. Slökkvilið Höfuðborgarsvæðisins. Aðkoma slökkviliðs. 11:40 Pallborðsumræður og spurningar. 12:00 Brunaþingi slitið. ________________________________________________________________________________ Microsoft Teams meeting Join: https://teams.microsoft.com/meet/377484678798099?p=SbU5tyU25TS97s67uP Meeting ID: 377 484 678 798 099 Passcode: fd9c5Yz2 Aðalfundur Brunatæknifélagsins verður haldinn í framhaldi af þinginu. Á dagskrá eru hefðbundin aðalfundarstörf. Hádegisverður er fyrir félagsmenn í boði BTÍ. Þingið er opið öllum og er í boði eftirtalinna styrktaraðila: |
Fréttir
Brunaþing 2026 – takið daginn frá!
Brunaþing 2026 verður haldið föstudaginn 29. maí á Hótel Reykjavík Natura – Berjaya Iceland Hotels, Nauthólsvegi 52.
Málefni þingsins að þessu sinni er aðkoma slökkviliðs, landslagshönnun og samspil öryggisþátta og gæða útisvæða. Á þinginu verða erindi frá fjölbreyttum hópi sérfræðinga bæði hérlendra og erlendra landslagsarkitekta, fulltrúa Slökkviliðs Höfuðborgarsvæðisins og brunaverkfræðings.
Þingið mun standa yfir frá 9:00 – 12:00 og verður streymt á Teams. Nánari dagskrá verður birt þegar nær dregur þinginu.
Aðalfundur Brunatæknifélagsins verður haldinn í framhaldi af þinginu. Á dagskrá eru hefðbundin aðalfundarstörf. Hádegisverður er fyrir félagsmenn í boði BTÍ.
Morgunfundur BTÍ: Tölfræði 2025 og bruni ársins
Brunatæknifélag Íslands boðar morgunfund þann 27. mars næstkomandi þar sem fjallað verður um tölfræði bruna ársins 2025 og bruna í Primex verksmiðjunni á Siglufirði.
Fundurinn verður haldinn í fundarsal Lotu verkfræðistofu, Guðríðarstíg 2-4, 113 Reykjavík. Fundinum verður jafnframt streymt á Teams, hlekkur fylgir hér neðar.
Fundurinn hefst klukkan 9:00 og áætlað er að honum ljúki 11:00 eða fyrr. Sjá dagskrá hér að neðan.
Tölfræði brunatjóna ársins 2025
Grétar Þór Þorsteinsson, HMS.
Bruni í Primex verksmiðjunni Siglufirði 2025
Jóhann K. Jóhannsson, Slökkviliðsstjóri Slökkviliðs Fjallabyggðar
Kaffi og með því í boði Lotu.
Stjórn Brunatæknifélagsins.
Morgunfundur um loftræsi- og reykræsilausnir með Promat eldvarnarplötum
Næsti fundur Brunatæknifélagins verður haldinn miðvikudaginn 28. janúar á Hótel Reykjavík Natura.
Á fundinum verður fjallað um útfærslu brunavarna með Promat eldvarnarplötum. Linas Krisciunas, verkefnastjóri hjá Promat, heldur erindi með sérstaka áherslu á notkun Promat platna í loftræsi- og reykræsilausnum, þar með talið loftræsilausnir frá iðnaðareldhúsum. Jafnframt verður fjallað um brunavarnir timbur- og stálburðarvirkja með Promat plötum.
Fundurinn hefst kl. 9:00 á Hótel Reykjavík Natura, Nauthólsvegi 52 í Reykjavík. Áætlað er að fundinum ljúki kl. 10:00. Fundinum verður jafnframt streymt á Teams, hlekkur verður sendur út fyrir fundinn.
Kaffi og kleinur í boði Promat og Redder ehf.
Stjórn Brunatæknifélagsins.
Morgunfundur um bruna í rafbílum og rafmagnshjólum
Brunatæknifélagið efnir til fundar um bruna í rafbílum og rafmagnshjólum þann 4. desember næstkomandi.
Fundurinn fer fram á slökkvistöðinni á Selfossi, Árvegi 1. 800 Selfoss.
Á fundinum munu Eyjólfur Óli Jónsson, varðstjóri BÁ og Jón Þór Jóhannsson varðstjóri og eldvarnaeftilitsmaður hjá BÁ fjalla um bruna í Tesla bifreið og rafhjólum ásamt því að fjalla um aðferðarfræði slökkviliða við bruna í rafbílum.
Fundurinn hefst kl. 10:00 og áætlað er að honum ljúki 11:00 eða fyrr.
Kaffi og með því í boði BTÍ.
Fundinum verður streymt á Teams, hlekkur verður sendur út á félagsmenn fyrir fundinn.
Niðurstaða auka aðalfundar BTÍ
Í framhaldi af umræðum á aðalfundi BTÍ þann 16. maí síðastliðinn var boðað til auka-aðalfundar þann 8. október síðastliðinn til að ræða annarsvegar lagabreytingar félagsins og hinsvegar ályktun um löggildinu brunahönnuða.
Lagabreytingar sneru að inngöngu Brunatæknifélagsins í SFPE og jafnframt aðlögun á lögum m.t.t. krafna sem gerðar eru til samþykkta félagasamtaka. Lagabreytingar voru samþykkar einróma, nýju lögin hafa verið birt á heimasíðu BTÍ á slóðinni www.bti.is/log-bti.
Ályktun um löggildingu brunahönnuða var kynnt og samþykkt einróma af fundarmönnum. Rætt var að félögum BTÍ yrðu kynnt endanleg gögn sem send verða ráðherra. Ályktunina má lesa hér fyrir neðan.
Auka aðalfundur Brunatæknifélags Íslands, sem haldinn var í Síðumúla 1 í Reykjavík, skorar á félags- og húsnæðismálaráðherra að tryggja að brunahönnun mannvirkja verði sér svið í löggildingu hönnuða líkt og í nágrannalöndum okkar, þar sem það varðar öryggi fólks. Í dag eru fimm svið hönnunar þar sem krafist er löggildingar en ekkert þeirra inniheldur í raun hönnun á brunaöryggi mannvirkja. Á undanförnum árum, sér í lagi eftir 2012, hefur vægi hönnunar á brunavörnum og eftirfylgni brunavarna aukist umtalsvert. Krafist er trygginga líkt og um löggilt svið væri að ræða og að aðaluppdrættir séu undirritaðir af hönnuði brunavarna án þess að neinar lagalegar kröfur liggi til grundvallar. Brunaverkfræði er sér faggrein sem kennd hefur verið í mörgum stærri háskólum undanfarna áratugi. Framkvæmdaaðilar stærri og flóknari mannvirkja gera kröfur um að þeir sem annist hönnun brunavarna hafi sérþekkingu á faginu og viðeigandi menntun.
Fundurinn segir að virða þurfi mikilvægi brunavarna í mannvirkjum í samræmi við þarfir samfélagsins og þá þróun sem orðið hefur hér á landi og í þeim löndum sem við berum okkur saman við. Löggilding ætti að stuðla að auknum gæðum hönnunar og þeirra gagna sem krafist er í byggingarreglugerð að skilað sé inn þegar sótt er um byggingarleyfi. Í dag er ekki unnt að svipta hönnuð brunavarna löggildingu né vera með formlegt eftirlit auk þess sem kröfur til gæðakerfa ná einungis yfir fagsvið innan löggildingar.
Fundurinn felur brunaverkfræðingunum Davíð S. Snorrasyni hjá ÖRUGG, Guðna Inga Pálssyni hjá COWI og Sveinbjörgu Söru Baldursdóttur hjá EFLU að útfæra tillögurnar frekar og skrifa bréf til ráðherra þar sem farið verður fram á löggildingu fyrir brunahönnun mannvirkja.
Auka aðalfundur Brunatæknifélags Íslands 8. október 2025, Reykjavík.
Auka aðalfundur BTÍ 2025
Í framhaldi af aðalfundi BTÍ þann 16. maí síðastliðinn er boðað til auka-aðalfundar þann 8. október næstkomandi. Fundurinn fer fram kl. 13:00. Fundarstaður er Salur Garðyrkjufélags Íslands Síðumúla 1 (gengið inn frá Ármúla).
Dagskrá verður eftirfarandi:
- Kynning á lagabreytingum félagsins m.a. vegna inngöngu BTÍ í SFPE. Lögin lögð fram til samþykktar.
- Ályktun um löggildingu brunahönnuða
- Önnur mál
Kaffi og með því í boði BTÍ.
Lagabreytingatillaga hefur verið birt á heimasíðu BTÍ á slóðinni:
Brunaþing BTÍ 2025
Brunaþing 2025 verður haldið föstudaginn 16. maí á Hótel Reykjavík Natura – Berjaya Iceland Hotels, Nauthólsvegi 52.
Málefni þingsins að þessu sinni verða sólarrafhlöður á byggingum og rafhlöðubankar. Á þinginu verða erindi frá fjölbreyttum hópi sérfræðinga bæði hérlendra og erlendra.
Dagskrá verður eftirfarandi:
8:30 Setning og skipun þingstjóra. Atli Rútur Þorsteinsson, formaður stjórnar Brunatæknifélags Íslands.
8:40 – 9:10 Nik Rus, mag. inž. teh. Var., ZAG – Slovenian National Building and Civil Engineering Institute. Fire Safety of Buildings with Rooftop PV systems.
9:10 – 9:40 Guðjón Hugberg Björnsson. Tæknistjóri hjá Orku Náttúrunnar. Birta Bæjarhálsi.
9:40 – 10:10 Elvar Ingi Jóhannesson, verkfræðingur hjá ÖRUGG verkfræðistofu. ÖRUGG nálgun – brunatæknileg hönnun rafhlöðuklasa og sólarrafhlöðukerfa.
10:10 – 10:30 Kaffihlé
10:30 – 11:10 Sondre Zakariassen, Fire Engineer – Storebrand Insurance. Fire Risk in Solar Panel Systems – What Do We Need to Know?
11:10 – 11:40 Amanda Tarbet, Sr. Program Manager SFPE Foundation. SFPE Foundation’s work related to PV systems and battery storage.
11:40 Pallborðsumræður og spurningar.
12:00 Brunaþingi slitið.
Brunaþing 2025 er í boði eftirtalinna styrktaraðila.

Ný heimasíða BTÍ
Ný heimasíða Brunatæknifélags Íslands hefur nú verið birt.
Vinna við efni heimasíðunnar er í gangi. Senda má ábendingar um efni síðunnar á bti@bti.is.
Brunaþing 2016 var haldið föstudaginn 13. maí á Hótel Natura
Brunaþing 2016 var haldið föstudaginn 13. maí á Hótel Natura.
Þema þingsins var slökkvifroða. Fjallað var um froðu, notkun hennar og þróun með tilliti til umhverfis.
Upptökur af þinginu eru hér: