Ný heimasíða Brunatæknifélags Íslands hefur nú verið birt.
Vinna við efni heimasíðunnar er í gangi. Senda má ábendingar um efni síðunnar á bti@bti.is.
Ný heimasíða Brunatæknifélags Íslands hefur nú verið birt.
Vinna við efni heimasíðunnar er í gangi. Senda má ábendingar um efni síðunnar á bti@bti.is.
Brunaþing 2016 var haldið föstudaginn 13. maí á Hótel Natura.
Þema þingsins var slökkvifroða. Fjallað var um froðu, notkun hennar og þróun með tilliti til umhverfis.
Upptökur af þinginu eru hér:
Morgunfundur BTÍ var haldinn miðvikudaginn 25. maí 2016 í fundarsal Verkís Ofanleiti 2.:
Fundarefnið var: Samanburður hönnunar og brunahönnunar mannvirkja í Noregi og á Íslandi.
Magnús Skúlason byggingarverkfræðingur hjá Verkís fjallaði um hönnun mannvirkja í Noregi, þ.m.t. hönnunarfasa, númerakerfi, lög og reglugerðir, byggingarleyfi, kröfur til menntunar og reynslu, kröfur til skjölunar og skipulagningar verkefna, rýni ótengdra aðila o.fl.
Davíð S. Snorrason brunahönnuður hjá Verkís fjallaði um mismunandi verklag og áherslur við brunahönnun og brunavarnir, hvernig regluverkið sé öðruvísi og hvað við höfum og getum lært af samstarfi við Norðmenn.
Fundarstjóri: Björn Ingi Sverrisson.
Upptaka af fundinum er hér:
Fyrsti morgunfundur vetrarins var 6. október kl. 8:15-10:00.
Kynnt var skráningarkerfi Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins vegna eftirlits með slökkvi- og brunaviðvörunarkerfum og möguleg hagnýting þeirra á fleiri sviðum.
Fyrirlesarar voru Einar Bergmann Sveinsson, Ólafur Kr. Ragnarsson og Ómar Traustason frá SHS.
Þeir fjölluðu um hvernig eldvarnaeftirlitskerfið hefur verið byggt upp og hvernig verið er að bæta inn í það eftirliti með brunaviðvörunarkerfis- og vatnsúðakerfunum og hvað menn sjá fyrir sér í framtíðinni, og hvaða möguleikar eru til viðbótar.
Fundurinn var í sal EFLU verkfræðistofu á Höfðabakka 9.
Upptaka af fundinum er hér:
Árlegur janúarfundur BTÍ verður haldinn miðvikudaginn 30. janúar 2019.
Dagskrá:
Tölfræðin og athyglisverðir brunar 2018. Davíð S. Snorrason fagstjóri Eldvarnasviðs MVS og Kristján V. Rúriksson verkfræðingur frá MVS
Bruni ársins: Birgir Finnsson, aðstoðarslökkviliðstjóri SHS og Bjarni Kjartansson sviðssjóri forvarnasviðs SHS
Fundurinn verður í fyrirlestrasal Verkís að Ofanleiti 2, 113 Reykjavík og hefst kl. 8:15. Fundinum lýkur kl. 10 eða fyrr.
Fundurinn er öllum opinn og aðgangur ókeypis. Kaffi er í boði Verkís.
Næsti fundur BTÍ verður haldinn miðvikudaginn 20. mars 2019.
Daníel Apeland frá Nordic Fire & Rescue Service kemur og kynnir OneSeven froðukerfið sem mörg slökkvilið eru komin með í notkun og fleiri eru að fara að fá með nýjum slökkvibifreiðum.
Kynnir hann helstu kosti og slökkviaðferðir með oneseven kerfinu auk mögulegrar uppsetningu í byggingum.
Fundurinn verður í fyrirlestrasal EFLU að Lynghálsi 4, 110 Reykjavík og hefst kl. 8:15. Fundinum lýkur kl. 10 eða fyrr.
Fundurinn er öllum opinn og aðgangur ókeypis. Kaffi er í boði Eflu.
Brunaþing 2019 verður haldið föstudaginn 10. maí á Hótel Natura, að þessu sinni í samstarfi Brunatæknifélagsins og Lagnafélagsins.
Þema þingsins er Lagnaefni – Hönnun og brunavarnir.
Þátttaka er ókeypis fyrir félagsmenn Brunatæknifélagsins og félagsmenn Lagnafélags Íslands.
————
Dagskrá er eftirfarandi:
8:30 Setning og skipun þingstjóra. Kristján Rúriksson formaður BTÍ.
8:40 Fyrirlesari frá Trox Auranor, sem er framleiðandi lagnaefnis, kynnir nýjungar á sviði lagnaefna og tækni tengda þeim.
9:40 Kröfur sem gerðar eru til efna í lagnir og loftræsikerfi í dag og nauðsynlegar breytingar framundan. Davíð S. Snorrason verkfræðingur, fagstjóri eldvarna hjá Mannvirkjastofnun.
10:10 Kaffihlé.
10:30 Hönnun og efnisval loftræsikerfa. Brynjar Örn Árnason verkfræðingur á EFLU verkfræðistofu.
11:10 Brunatæknileg hönnun loftræsikerfa. Elvar Ingi Jóhannesson og Árni Árnason, verkfræðingar á EFLU.
11:40 Pallborðsumræður og spurningar.
12:00 Brunaþingi slitið.
——–
Aðalfundur Brunatæknifélagsins verður haldinn í framhaldi af þinginu.
Hádegisverður er fyrir félagsmenn í boði BTÍ.
Brunatæknifélagið hefur tekið í notkun nýja vefsíðu.
Slóðin er bti.is.
Síðan er hönnuð og sett upp í samvinnu við Emstrur vefsíðugerð, í Drupal vefumhverfi. Í Drupal kerfinu er einkar auðvelt að halda utan um gögn, fréttir og samskipti við félagsmenn. Einnig er handhægt að þróa vefumhverfið og bæta við nýjum gögnum og eiginleikum eftir þörfum.
Síðan er enn í þróun og við vonumst til að hún verði í stöðugri þróun og verði lifandi vettvangur félagsins.
Hugmynd okkar er að síðan verði vettvangur tilkynninga, frétta og skoðanaskipta félagsmanna BTÍ. Félagsmenn munu geta nálgast eldra efni, fundargerðir, myndir og fróðleik úr sögu félagsins þegar fram líða stundir.
Hægt er að sækja um aðild að félaginu á síðunni og félagar geta sjálfir flett upp í félagaskrá og uppfært upplýsingar um sig.
Við hvetjum félaga til að láta í sér heyra og koma með tillögur að efni og því sem betur má fara að þeirra mati.
Fyrirlestur John-Erik Holmli frá Viking Sprinkler af fundi um úðakerfi 10. nóv. 2014 er kominn á vef BTI.is.
Félagsmenn geta skráð sig inn á síðuna með notandanafni og lykilorði og geta þá sótt efnið af fundinum undir Gagnasafn – Morgunverðarfundir.
Þann 16. apríl 2010 var haldið Brunavarnarþing 2010 og í framhaldi af því aðalfundur BTÍ.
Þema Brunavarnarþings var burðarvirki og brunavarnir þar sem fjallað var um brunahönnun burðarvirkja frá ýmsum sjónarhornum eins og t.d. reglugerðurm varðandi þau, öryggi slökkviliðsmanna í háhýsum, brunhönnun og rannsóknir á burðarvirkjum eftir bruna. Eftir þingið var síðan aðalfundur BTÍ haldinn.
Þar urðu þær breytingar að Gunnar H. Kristjánsson gekk úr stjórn og inn kom Kristján Vilhelm Rúriksson, verkfræðingur hjá Brunamálastofnun. Gunnari eru færðar þakkir fyrir mjög vel unnin störf á undanförnum árum í þágu félagssins.