Brunaþing 2015 verður haldið föstudaginn 8. maí á Hótel Natura.
Þema þingsins er brunarannsóknir í víðu samhengi.
Dagskrá:
08:00 Mæting og skráning
08:30 Setning og kynning efnis
08:40 Guðmundur Gunnarsson yfirverkfr.: Aðkoma Mannvirkjastofnunar að brunarannsóknum
09:00 Sigurður Ingi Geirsson, Sjóvá: Aðkoma tryggingafélags að brunatjóni
09:20 Dr. Rory Hadden, fyrirlesari frá BRE Centre for Fire Safety Engineering, University of Edinburgh
10:05 Kaffi
10:30 Lúðvík Eiðsson, tæknideild Lögreglunnar: Brunarannsóknir á Íslandi
10:50 Dr. Jim Lygate, IFIC Forensics, Glasgow (Fyrirlestur Jims verður fluttur um fjarfundarbúnað)
11:35 Pallborðsumræður og spurningar
12:00 Þingi slitið.
Þingstjóri er Anna Málfríður Jónsdóttir verkfræðingur hjá VSI.
Þingið er öllum opið. Þátttökugjald er kr. 3000 en frítt fyrir félagsmenn og styrktaraðila.
Ekki þarf að tilkynna þátttöku fyrirfram.
——–
Aðalfundur Brunatæknifélagsins verður haldinn í framhaldi af þinginu. Hádegisverður er fyrir félagsmenn í boði BTÍ.