Fréttir

Í tilefni þess að Brunatæknifélag Íslands varð 20 ára á dögunum er ráðgert að gera sér dagamun 9. júní næstkomandi.
Fyrirhugað er að hefja dagskrá kl 16:00 við Sundahöfn.  Þar er stigið upp í rútu sem mun aka með okkur milli merkra staða í sögu brunamála á höfuðborgarsvæðinu, um leið og við hlýðum á fyrirlestra og horfum á glærur.
Að rútuferð lokinni verður stigið um borð í Viðeyjarferju sem ferjar okkur út í Viðey, en þar munum við njóta hátíðarkvöldverðar og hátíðardagskrár. Þess má geta að félagið var stofnað í Viðey fyrir rúmlega 20 árum.

Í tilefni þess að Brunatæknifélag Íslands varð 20 ára á dögunum er ráðgert að gera sér dagamun 9. júní næstkomandi.

Fyrirhugað er að hefja dagskrá kl 16:00 við Sundahöfn. Þar er stigið upp í rútu sem mun aka með okkur milli merkra staða í sögu brunamála á höfuðborgarsvæðinu, um leið og við hlýðum á fyrirlestra og horfum á glærur.

Að rútuferð lokinni verður stigið um borð í Viðeyjarferju sem ferjar okkur út í Viðey, en þar munum við njóta hátíðarkvöldverðar og hátíðardagskrár. Þess má geta að félagið var stofnað í Viðey fyrir rúmlega 20 árum.

BTÍ mun niðurgreiða aðgangseyri rausnalega og verður hann því aðeins kr 5.000,- á mannin. Innifalið er rútuferð, Viðeyjarferjan (fram og til baka J) og kvöldverður.

Til að þetta geti gengið upp þurfum við lágmarksfjölda þátttakenda. Því biðjum við þau sem ætla að taka þátt að láta okkur vita á póstfang mailto:bis@verkis.is.is fyrir kl 12:00 mánudaginn 6. júní n.k.

Vonumst til að sjá ykkur sem flest.

Brunatæknifélagið efnir til kynningar á brunahönnun nýbyggingar Ölgerðarinnar og síðan verður farið í skoðunarferð um bygginguna. Ef til vill verður svo gerð smá gæðakönnun á framleiðslunni.

Böðvar Tómasson hjá Eflu sá um brunahönnun byggingarinnar og mun hann stjórna kynningunni.

Brunatæknifélagið efnir til kynningar á brunahönnun nýbyggingar Ölgerðarinnar og síðan verður farið í skoðunarferð um bygginguna. Ef til vill verður svo gerð smá gæðakönnun á framleiðslunni.

Böðvar Tómasson hjá Eflu sá um brunahönnun byggingarinnar og mun hann stjórna kynningunni.

Morgunverðarfundur, 14. nóvember kl. 8.00

Brunatæknifélag Íslands efnir til morgunverðarfundar miðvikudaginn 14. nóvember 2012 kl. 8.00 á Icelandair Hotel Reykjavik Natura.

Fundarefnið verður: Eigið eldvarnareftirlit í fyrirtækjum og stofnunum. Staða málaflokksins, framtíðarhorfur og reynsla notenda.

Samkvæmt lögum og reglugerðum eiga forráðamenn fyrirtækja og stofnana að stunda eigið eldvarnareftirlit í þeim mannvirkjum sem þeir bera ábyrgð á.

Afar rólega hefur gengið að koma þessu mikilvæga máli á koppinn víðast hvar. Á þessum fundi verður leitast við að skoða stöðu þessara mála eins og þau líta út í dag og framtíðarhorfur.

Dagskrá fundarins:

  • Garðar Guðjónsson fulltrúi Eldvarnarbandalagsins segir frá fyrirætlunum þess og framtíðaráformum. Eldvarnarbandalagið er samstarfsvettvangur um auknar eldvarnir og samanstendur af ýmsum hagsmunaaðilum þ.á.m. Mannvirkjastofnun SHS og öllum helstu tryggingafélögum landsins.
  • Örvar Aðalsteinsson frá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins segir frá starfi SHS í málaflokknum.
  • Lúðvík B. Ögmundsson öryggisstjóri Landsnets segir frá reynslu þeirra af eigin eldvarnareftirliti
  • Vilhjálmur Pálmason deildarstjóri hjá Háskóla Íslands segir frá þeirra reynslu.
  • Umræður og fyrirspurnum svarað.

Reiknað er með að fundinum ljúki um kl. 10.00.

Fundarstjóri Óskar Þorsteinsson formaður BTÍ.

Enginn aðgangseyrir er að fundinum en ætlast er til að fundargestir kaupi sér morgunverð af morgunverðarhlaðborði hótelsins.

Stjórn Brunatæknifélags Íslands.

Brunaþing 2014, 9. maí að Hotel Natura

Fjallað verður um brunavarnir vegna gróðurelda, farið yfir ástand brunavarna, hvernig slökkviliðin eru í stakk búin til að takast á við þá og hvernig hægt er að undirbúa sig fyrir þá.Þingstjóri verður Kristján Einarsson slökkviliðsstjóri brunavarna Árnessýslu.Aðalfundur Brunatæknifélagsins verður haldinn að loknu Brunavarnaþingi. Hádegisverður er í boði félagsins fyrir félagsmenn BTÍ.

BRUNAVARNAÞING 2014

Mynd úr safni. sunnlenska.is/Guðmundur Karl

DAGSKRÁ

8:00       Setning þingsins og skipun þingstjóra – Kristján Vilhelm Rúriksson formaður BTÍ.

8:10       Landfræðilegur gagnagrunnur fyrir brunavarnir. – Björn Traustason, landfræðingur hjá Skógrækt ríkisins

8:30       Vinna stýrihóps um varnir gegn gróðurbrunum – Kristján Einarsson slökkviliðsstjóri hjá Brunavörnum Árnessýslu

8:50       Eldvarnir og skipulagning í gróðurlendi í Noregi og víðar – Dag Boten, slökkviliðsstjóri frá Noregi, fjallar um skipulag og reynslu m.t.t. eldvarna gagnvart gróðurbrunum

9:30       Kaffihlé

9:50       Frumvarp til laga um gróðurelda – Sigurbjörg Sæmundsdóttir, deildarstjóri hjá Umhverfis- og auðlindaráðuneytinu 

10:10     Viðbragðáætlanir í sumarhúsalöndum og öðru grónu landi. – Guðni Ingi Pálsson frá Mannvit, fjallar um verkefni sem unnið er að í Árnessýslu.

10:30     Tryggingar á sumarhúsasvæðum og í skógrækt – Karl Hjartason frá VÍS

10:50     Möguleikar á vatnstöku með borunum – Guðmundur Karl Guðjónsson, tæknifræðingur hjá Ræktunarsambandi Flóa og Skeiða

11:10     Kaffihlé

11:30     Sjónarmið sumarhúsaeigenda gagnvart gróðureldum og skipulagi – Sveinn Guðmundsson frá Landsambandi sumarhúsaeigenda

11:50     Sjónarmið sveitarstjórnamanna gagnavart gróðureldum og skipulagi – Pétur Ingi Haraldsson, skipulagsfulltrúi uppsveita Árnessýslu

12:10     Pallborðsumræður.

12:30     Brunaþingi slitið

————————–

 

Aðalfundur Brunatæknifélagsins verður haldinn að loknu Brunavarnaþingi. Hádegisverður er í boði félagsins fyrir félagsmenn BTÍ.

Brunar ársins 2013

Brunatæknifélag Íslands efnir til morgunverðarfundar

miðvikudaginn 29.janúar 2014 kl. 8:00 á Icelandair Hotel Reykjavik Natura.

Fundarefnið verður: *Brunar ársins 2013*

Dagskrá:

  * Guðmundur Gunnarsson yfirverkfræðingur Mannvirkjastofnunar fer yfir tölfræðina og ræðir um athyglisverða bruna á nýliðnu ári.

  * Þráinn Ólafsson slökkviliðsstjóri Akraness og og Hvalfjarðarsveitar segir frá brunanum í húsnæði skipasmíðastöðvar Þorgeirs og Ellerts.

  * Umræður og fyrirspurnum svarað.

 

Reiknað er með að fundinum ljúki um kl. 10:00.

Fundarstjóri: Kristján Vilhelm Rúriksson formaður BTÍ.

Enginn aðgangseyrir er að fundinum en ætlast er til að fundargestir kaupi sér morgunverð af morgunverðarhlaðborði hótelsins.

 

Mynd af vef ruv.is – Magnús Guðmundsson

Nýjungar í slökkvikerfum í Evrópu

Brunatæknifélag íslands boðar til morgunverðarfundar um úðakerfi á Hótel Natura (Loftleiðum) þriðjudaginn 7. janúar 2014 kl. 8.

Í fundinum verður fjallað um það sem er nýjast að gerast í málefnum slökkvikerfa í Evrópu og m.a. komið inn á eftirfarandi efni:

– Þróun úðakerfa og þokukerfa og mismunandi notkun þeirra

– Möguleikar á að steypa röralagnir fyrir kerfin inn í steinsteypu, hvernig rör eru leyfð, samsetningar, lega lagna og frágangur

– Notkun plaströra í úðakerfi; gerðir, í hvaða áhættuflokkum má nota þau, varðar eða óvarðar lagnir

– Úðakerfi í íbúðum á hjúkrunarheimilum og slíkum stöðum

– Úðakerfi eða gaskerfi í viðkvæmum tæknirýmum t.d. tölvurýmum

Fyrirlesarar eru John Erik Homli og Nick Groos frá Viking Sprinkler í Evrópu. Þeir hafa báðir áratuga reynslu á þessu sviði og þekkja vel þá þróun sem er varðandi notkun kerfa og allan tæknibúnað í þau.

Enginn aðgangseyrir er að fundinum, en ætlast er til að fundargestir kaupi sér morgunverð af morgunverðarhlaðborði hótelsins.

Stjórn Brunatæknifélags Íslands.

Kynning á nýrri tækni á brunavörnum

Kynning á þráðlausum brunavörnum

Securitas hf. stendur fyrir kynningu á nýrri tækni á brunavörnum miðvikudaginn 27. nóvember kl. 09:00-11:00 á Grand Hótel Reykjavík, Sigtúni 38.

Haldin verður kynning á Hyfire þráðlausum brunavörnum þar sem Paul Turner frá Sterling Safety Systems fer yfir nýjungar í þráðlausum brunavörnum. Einnig mun Jóhann Gunnar Sveinsson rafmagnsiðnfræðingur og sérfræðingur hjá Securitas fara yfir mögulegar uppsetningar á þessum búnaði og hvernig reynsla manna er.

Sterling Safety Systems er leiðandi fyrirtæki í brunavörnum og  er þetta frábært tækifæri til að kynnast nýjungum í þessum flokki.

 Hyfire þráðlausir reykskynjarar eru EN54 vottaðir og virka með bæði vistfanga og rásaskiptum brunakerfum. Hyfire vinnur með mörgum tegundum brunakerfa og þar á meðal Notifier.

Securitas býður þér að sækja þessa kynningu. Boðið verður upp á léttan morgunverð.

Brunaþing, 3. maí

 BRUNAÞING 2013

Ný byggingarreglugerð – ný brunavarnaákvæði

Brunatæknifélagið heldur sitt árlega brunaþing í bíósal Hotel Reykjavik Natura 3. maí nk. kl.  8:30 – 12:05. Fjallað verður almennt um helstu tíðindi nýrrar byggingarreglugerðar sem tók gildi í apríl 2013 í nokkuð breyttri mynd. Hvað hefur breyst frá reglugerðinni sem kom út í jan. 2012? Lögð er sérstök áhersla á kafla 9 í reglugerðinni sem fjallar um brunavarnir en hann hefur tekið nokkuð miklum breytingum.  6. og 7. kafli sem fjalla m.a. um innri rými og og útisvæði hafa einnig tekið nokkrum breytingum. Einnig verður fjallað um brunavarnaákvæði sænsku reglugerðarinnar og reynslu af henni.

DAGSKRÁ

Setning þingsins: Óskar Þorsteinsson formaður Brunatæknifélagsins. 8:30 – 8:40  

Helstu tíðindin í nýrri byggingarreglugerð. Ingibjörg Halldórsdóttir lögfræðingur Mannvirkjastofnunar. 8:40 – 9:05  

Almennt um aðferðir stjórnvalda við reglusetningu og vinna Mannvirkjastofnunar við ritun byggingarreglugerðar. Björn Karlsson forstjóri MVS. 9:05 – 9:35 

Stutt kaffihlé (10 mín) 9:35 – 9:45

Sjónarmið aðalhönnuðar varðandi nýja byggingarreglugerð. Hverju breytir hún? Ásgeir Ásgeirsson arkitekt T.ark. 9:45 – 10:05

Brunavarnir í sænsku byggingarreglugerðinni. Saga – reynsla: Tomas Rantatalo brunaverkfræðingur FSD Svíþjóð: 10:05 – 10:35  

Langt kaffihlé (20 mín) 10:35 – 10:55 

Sjónarmið brunahönnuðar við breytingar á 9. kaflanum um brunavarnir:  Böðvar Tómasson, sviðsstjóri bruna- og öryggissviðs Eflu. 10:55 – 11:25 

Sjónarmið SHS varðandi nýja byggingarreglugerð með áherslu á 9. kaflann um brunavarnir. Bjarni Kjartansson sviðsstjóri forvarnarsviðs SHS. 11:25 – 11:45 

11:45 – 12:05 Spurningar og pallborðsumræður

 

Þingstjóri er Gunnar H. Kristjánsson verkfræðingur. Frítt er fyrir skuldlausa félagsmenn Brunatæknifélagsins en þinggjald fyrir utanfélagsmenn er kr. 3000 sem greiðist á staðnum. 

 

Aðalfundur BTÍ

Aðalfundur BTÍ verður haldinn strax að loknu Brunaþingi.

 

Hádegisverður í boði félagsins.

Dagskrá:

1.Fundur settur, kosning fundarstjóra og fundarritara.

2.Skýrsla stjórnar (Óskar Þorsteinsson, formaður).

                Umræður

3. Reikningsskil (Árni Árnason, gjaldkeri)

                Umræður

4. Kosning stjórnar og skoðunarmanns

5. Önnur mál.

6. Fundi slitið.

Aðalfundur Brunatæknifélags Íslands 2012

Auglýsing um aðalfund Brunatæknifélags Íslands 2012.

Fundurinn verður haldinn föstudaginn 27. apríl á hótel Natura (Loftleiðahótel) og hefst kl. 12:30 eða strax á eftir Brunavarnaþingi.

Fundarmenn fá hádegisverð í boði félagsins.

Dagskrá:

1.        Setning fundar og kosning fundarstjóra

2.        Skýrsla stjórnar

3.        Reikningsskil og ákvörðun félagsgjalda

4.        Kosning formanns

5.        Kosning stjórnar og félagslegs skoðunarmanns

6.        Önnur mál

7.        Fundi slitið

Stjórn Brunatæknifélags Íslands

Brunavarnaþing 2012, 27. apríl á Hótel Natura

Brunavarnaþing 2012

föstudaginn 27. apríl í Hótel Natura (Loftleiðahótel):

Yfirskrift þingsins er 

BYGGINGARARFLEIFÐIN-BRUNAVARNIR

Fjallað verður um brunavarnir í gömlum byggingum og þau vandamál sem upp geta komið þegar verið er að endurnýja og lagfæra gömul hús, sérstaklega þegar varðveislugildi og öryggismál rekast á.

Þingstjóri verður Magnús Skúlason arkitekt.

Dagskrá

08:00 Innritun og móttaka gesta.

08:30 Setning þingsins og skipun þingstjóra.

  1. Guðmundur Gunnarsson yfirverkfræðingur Mannvirkjastofnunar mun fjalla um íslenskt laga- og reglugerðarumhverfi í þessum málaflokki.
  2. Steve Emery Ráðgjafi í brunavörnum hjá English Heritage frá Englandi. Mun fjalla m.a. um ensk lög og reglur og aðferðir sem notaðar eru þar í landi við varvðeislu gamalla og verðmætra húsa.
  3. Kaffihlé.
  4. Örn Baldursson arkitekt hjá Framkvæmdasýslu ríkisins mun fjalla um nýlegar lagfæringar í Miðbæjarskólanum í Reykjavík.
  5. Árni Árnason verkfræðingur hjá verkfræðistofunni Eflu mun fjalla um verkefni brunahönnuða í gömlum húsum.
  6. Pallborðsumræður

Gert er ráð fyrir að dagskránni ljúki kl. 12:30

Þinggjald er kr. 3.500 en frítt fyrir félagsmenn og styrktaraðila.

Strax að loknu þinginu verður aðalfundur Brunatæknifélags Íslands haldinn á sama stað.